Geðheilsuteymi fangelsa óskar eftir hjúkrunarfræðingi

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi við Geðheilsuteymi fangelsa. Um er að ræða 40-60% tímabundið starf til eins árs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi og líflegum vettvangi. Ekki skemmir fyrir ef viðkomandi hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í geðþjónustu heilsugæslunnar. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu, batahugmyndafræði, skaðaminnkun og vinnu þvert á stofnanir heilbrigðis- og réttarvörslukerfis. Teymið sinnir þjónustu á landsvísu og starfar í fangelsum á Litla Hrauni, Hólmsheiði, Sogni og Kvíabryggju. Teymið fylgir einnig eftir einstaklingum á reynslulausn.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir klínísku starfi 
  • Ber ábyrgð á ferli skjólstæðings í teyminu 
  • Tengir við aðra þjónustu og kemur málum í viðeigandi farveg 
  • Sinnir þróunarstarfi og umbótastarfi í þágu skjólstæðinga 
  • Stuðlar að geðheilbrigði og almennri heilsueflingu 
  • Vinnur náið með öðru heilbrigðisstarfsfólki sem veitir almenna heilbrigðisþjónustu innan fangelsanna 
  • Sinnir samstarfi og hefur samráð við sérfræðinga í geðheilbrigðismálum og velferðarþjónustu

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af vinnu með einstaklinga með geð- og fíknivanda kostur 
  • Reynsla af afeitrun og fráhvarfsmeðferð kostur 
  • Þekking og reynsla af aðferðum skaðaminnkunar kostur 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni 
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun 
  • Góð færni í að vinna í þverfaglegu teymi 
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi 
  • Góð almenn tölvukunnátta 
  • Íslensku- og enskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli 

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 40 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Matthías Matthíasson - matthias.matthiasson@heilsugaeslan.is - 823-0625

HH Geðheilsuteymi HH fangelsi
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »