Læknir - Geðheilsumiðstöð barna

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að lækni til starfa hjá Fjölskylduteymi 0-5 ára hjá Geðheilsumiðstöð barna.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára aldri. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 50 - 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.október n.k. eða eftir nánara samkomulagi. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst einkum í ráðgjöf, kortlagningu og meðferð foreldra sem vegna eigin vanlíðanar geta átt í erfiðleikum með að tengjast barni sínu. Starfað er í teymi með öðrum sérfræðingum og þátttaka í þróun og mótun þjónustu GMB. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Áhugi á vinnu með foreldrum og börnum í viðkvæmri stöðu
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð nálgun
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6620

Guðrún B Guðmundsdóttir - gudrun.bryndis.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6606

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »