Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður

Heilsugæslan Fjörður leitar að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.  

Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf hjúkrunarfræðings er fjölbreytt og víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónustu. Í bókaðri móttöku er erindum sem eru ekki bráð sinnt, s.s. lyfjagjöfum, saumatöku, sárameðferð og smáaðgerðum.

Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði. Mikil teymisvinna er á milli fagstétta.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
  • Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Áhugi á forvörnum og heilsueflandi starfi 
  • Færni í fyrirlestrahaldi
  • Áhugi á réttindum barna
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Björk Árnadóttir - thelma.bjork.arnadottir@heilsugaeslan.is - 513-5400

Sandra Ásgeirsdóttir - sandra.asgeirsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5400

HH Firði hjúkrun
Fjarðargötu 13 - 15
220 Hafnarfjörður

Sækja um starf »