Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Grafarvogi

Heilsugæslan Grafarvogi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 50-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Á Heilsugæslunni Grafarvogi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.  

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.  

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Grafarvogi leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.    

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka

  •  Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.    
     
  • Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.  

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Eyrún Ösp Guðmundsdóttir - eyrun.osp.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5600

Guðmundur Karl Sigurðsson - gudmundur.karl.sigurdsson@heilsugaeslan.is - 513-5600

HH Grafarvogi hjúkrun
Spönginni 35
112 Reykjavík

Sækja um starf »