Almennur læknir - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæslan Efra-Breiðholti óskar eftir að ráða almennan lækni. Um er að ræða 100% starf en möguleiki er á lægra starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánari samkomulagi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem hefur áhuga á að kynnast heimilislækningum og getur starfið verið góður undirbúningur fyrir sérnám í heimilislækningum. 

Á stöðinni er mikil áhersla lögð á góða samvinnu fagstétta og eru þar starfandi sérfræðingar í heimilislækningum, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingur, ljósmóðir, félagsráðgjafi, sjúkraliði, sjúkraþjálfari, klínískur lyfjafræðingur, ritarar og skrifstofustjóri. Heilsugæslan Efra Breiðholti þjónar íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina.  

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsvið læknis felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd og opinni móttöku ásamt þátttöku í teymisvinnu samstarfsfólks. Verkefnin eru fjölbreytt og býðst viðkomandi einnig að taka þátt í faglegri þróun og mótun verklags.


 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Skipulagshlæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði.
  • Hreint sakavottorð

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Nanna Sigríður Kristinsdóttir - nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5300

HH Efra Breiðholti lækningar
Hraunbergi 6
111 Reykjavík

Sækja um starf »