Ljósmæður sumarafleysingar - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir ljósmæðrum í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á tímabilinu júní-ágúst. Starfshlutfall er frá 20-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst aðallega í mæðravernd en markmið með mæðravernd er að að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita faglega umönnun, stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og bregðast við þeim ásamt því að veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Mæðravernd er í höndum ljósmæðra í samvinnu við heimilislækna á heilsugæslustöðvum og fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 20 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigríður Vernharðsdóttir - anna.sigridur.vernhardsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000
HH Stjórnsýsla
Álfabakki 16
109 Reykjavík