Iðjuþjálfi - Geðheilsuteymi HH suður

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir iðjuþjálfa við Geðheilsuteymi HH suður sem er þverfaglegt meðferðarteymi. Teymið er til húsa að Bæjarlind 1-3. Um er að ræða 50 - 60 % ótímabundið starf og þarf iðjuþjálfi að geta tekið að sér málastjórn innan teymis. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.apríl eða eftir nánara samkomulagi. 

Við Geðheilsuteymi HH suður starfa reynslumiklir einstaklingar í þéttri og góðri samvinnu sem vinna að málum þjónustuþega í jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Teymið er meðferðarteymi og unnið er eftir batahugmyndafræði þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notenda. Tækifæri til nýsköpunar og starfsþróunar eru innan teymis og góður starfsandi.  Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingar, geðlæknir, heimilislæknir, sálfræðingar, fjölskyldufræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfi, íþróttafræðingur, notendafulltrúi ásamt skrifstofustjóra.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggur einstaklingsmiðaða iðjuþjálfun   
  • Meta færni notenda við athafnir daglegs lífs og þörf fyrir þjónustu og stuðning
  • Sinna ráðgjöf og fræðslu til notenda og aðstandenda
  • Viðtöl á starfsstöð og/eða í heimavitjunum ef þess þarf
  • Vinna í þverfaglegu meðferðarteymi með þátttöku í þróun þjónustu
  • Sinna málastjórn, þ.e. hafa umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði ákveðins notendahóps
  • Setja fram meðferðaráætlun og sinna reglulegu endurmati
  • Samstarf við fagaðila innan sem og utan stofnunar
  • Samstarf við aðrar stofnanir, úrræði og samtök 
  • Námskeiðahald og önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur

  • Starfsleyfi frá Landlækni er skilyrði 
  • Þekking og reynsla af störfum innan geðheilbrigðiskerfisins er skilyrði 
  • A.m.k. 2 ára reynsla af iðjuþjálfun
  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu 
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun í starfi 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Faglegur metnaður, framsýni og ábyrgð í starfi
  • Hæfni og áhugi á verkefnavinnu
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 50 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 03.03.2025

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Ófeigsdóttir - margret.ofeigsdottir@heilsugaeslan.is - 513 6380

HH Geðheilsuteymi suður
Bæjarlind 1-3
200 Kópavogur

Sækja um starf »