Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsfólki?

Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf  á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Efstaleiti, Grafarvogi, Hamraborg, Hlíðum, Firði ásamt Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Við erum líka að leita að sumarfólki í Heimahjúkrun heilsugæslunnar. Það eru fjölmörg spennandi störf í boði með ráðningartíma frá 6 vikum upp í 3 mánuði. 

Passar þú í hópinn?

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Uppgjör í lok dags
  • Móttaka tímapantana í afgreiðslu
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
  • Flokkun á pósti ásamt skönnun og frágangi gagna
  • Önnur verkefni falin af yfirmanni

Hæfnikröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af skrifstofustarfi kostur
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af Sögukerfi er kostur
  • Lágmarksaldur er 18 ár
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði. Ef óskað er eftir að starfa á ákveðinni heilsugæslustöð þá vinsamlegast takið það fram.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Rós Benediktsdóttir - lilja.ros.benediktsdottir@heilsugaeslan.is - null

Asmir Þór Þórsson - a.thor.thorsson@heilsugaeslan.is - null

HH Svið mannauðs- og nýliðunar
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »