Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsfólki?
Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Efstaleiti, Grafarvogi, Hamraborg, Hlíðum, Firði ásamt Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Við erum líka að leita að sumarfólki í Heimahjúkrun heilsugæslunnar. Það eru fjölmörg spennandi störf í boði með ráðningartíma frá 6 vikum upp í 3 mánuði.
Passar þú í hópinn?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
- Uppgjör í lok dags
- Móttaka tímapantana í afgreiðslu
- Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
- Flokkun á pósti ásamt skönnun og frágangi gagna
- Önnur verkefni falin af yfirmanni
Hæfnikröfur
- Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af skrifstofustarfi kostur
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af Sögukerfi er kostur
- Lágmarksaldur er 18 ár
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði. Ef óskað er eftir að starfa á ákveðinni heilsugæslustöð þá vinsamlegast takið það fram.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Lilja Rós Benediktsdóttir - lilja.ros.benediktsdottir@heilsugaeslan.is - null
Asmir Þór Þórsson - a.thor.thorsson@heilsugaeslan.is - null
HH Svið mannauðs- og nýliðunar
Álfabakki 16
109 Reykjavík