Skemmtileg sumarstörf - Sjúkraliði

Heimahjúkrun HH leitar eftir sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundin störf þar sem unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu.Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum og öðrum starfsmönnum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Sjúkraliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Mikil samskiptahæfni 
  • Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun 
  • Reynsla af heimahjúkrun æskileg 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslensku og enskukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »