Skemmtileg sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar

Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingum eða hjúkrunarnemum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundið vaktavinnustarf á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hjúkrunarfræðingur vinnur náið í teymi með öðrum hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og öðrum starfsmönnum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu 
  • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund 
  • Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg 
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Nánari Lýsing

Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. 

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »