Sjúkraþjálfari í hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku - Efra Breiðholt
Heilsugæslan Efra Breiðholti auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 50-80% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, góða samvinnu fagstétta og sveiganlegan vinnutíma.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
- Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
- Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
- Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
- Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
- Leiðbeinir samstarfsfólkii
Hæfnikröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku og enskukunnátta
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 60 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Vildís Bergþórsdóttir - vildis.bergthorsdottir@heilsugaeslan.is - null
HH Efra Breiðholti lækningar
Hraunbergi 6
111 Reykjavík