Vitsmunaþroski
Greindarpróf Wechslers fyrir leikskólaaldur (WPPSI-RIS)
WPPSI-RIS prófið er notað til að meta vitsmunaþroska barna á aldrinum 3:0 til 7:3 ára. Í því eru tíu ólík undirpróf, sem reyna á þekkingu, verklagni, orðaforða o.fl. Sum undirprófin krefjast málskilnings og málnotkunar. Önnur eru verkleg og leyst með því að handfjatla hluti, púsla og teikna. Niðurstöður (mælitölur) fást fyrir mál-, verk- og heildargetu. Meðalgeta barna er á bilinu 85 til 115 þegar um mælitölur er að ræða en 7-13 fyrir stök undirpróf. Árangur barna er borinn saman við árangur íslenskra jafnaldra.
Greindarpróf Wechslers fyrir börn - fjórða útgáfa (WISC-IVIS)
WISC-IVIS prófið veitir mikilvægar upplýsingar um vitsmunaþroska barna á aldrinum 6:0 til 16:11 ára. Notuð eru tíu ólík undirpróf, þar sem leysa á ýmis verkefni sem reyna á almenna greind og sértækari þætti. Verkefni eru t.d. tengd orðaforða, röksemdafærslu, minni o.fl. Undirprófin flokkast í fjóra þætti, Málstarf, Skynhugsun, Vinnsluminni og Vinnsluhraða. Fyrir þessa þætti og heildarútkomu fást niðurstöður í mælitölum. Meðalgeta barna er á bilinu 85 til 115 þegar um mælitölur er að ræða en fyrir stök undirpróf er meðalframmistaða á bilinu 7-13. Árangur barna er borinn saman við árangur íslenskra jafnaldra.
Bayley þroskapróf fyrir börn - þriðja útgáfa (Bayley-III)
Bayley-III metur vitsmuna-, mál- og hreyfiþroska barna sem eru yngri en 3:6 ára. Með því að leggja fyrir verkefni er metið hvernig barninu gengur að skilja samhengi hluta og vinna úr ýmsum upplýsingum (vitsmunahluti), skilja mál og tjá sig (málhluti) og leysa verkefni sem krefjast fín- og grófhreyfinga (hreyfihluti). Þroskatölur fást fyrir prófhlutana þrjá og er meðalgeta barna á bilinu 85-115. Geta barnsins er borin saman við getu bandarískra jafnaldra.
Annar þroski og dagleg færni
Spurningalisti um færni barna við daglega iðju (FBDI)
FBDI er spurningalisti sem aflar upplýsinga um þátttöku og færni barna við ýmsar daglegar athafnir. Spurt er um þætti sem lúta að eigin umsjá, leik og tómstundaiðju, þátttöku í skólastarfi, skynjun og hreyfingum auk handbeitingar og fínhreyfivinnu.
Þroska- og færnikvarðinn Hawaii Early Learning Profile (HELP)
HELP er markbundinn kvarði fyrir börn á aldrinum 0-3 ára. Hann skiptist í sex mismunandi hluta sem lúta að þroska og færni. Þessir hlutar eru: Vitsmunaþroski, Máltjáning, Grófhreyfiþroski, Fínhreyfiþroski, Félagsþroski og Sjálfshjálp. HELP nýtist einnig fyrir eldri börn með víðtæka hreyfihömlun og börn sem ekki er unnt að leggja fyrir stöðluð fyrirmæli. Niðurstöður eru settar fram sem aldursviðmið. Geta barnsins er borin saman við getu bandaríska jafnaldra.
Birting skynjunar hjá ung- og smábörnum (ITSP: Infant/Toddler Sensory Profile,)
Matslistinn nýtist til að fá mynd af skynúrvinnslu ung- og smábarna á aldrinum 0-36 mánaða. Metin er hegðun barnsins sem og viðbrögð við skynáreitum sem eru hluti af daglegum aðstæðum. Foreldrar merkja við hversu oft staðhæfingar matslistans eiga við. Matstækið er staðalbundið og viðmið eru bandarísk.
Íslenski þroskalistinn & Smábarnalistinn
Á Íslenska þroskalistanum og Smábarnalistanum eru spurningar um tvo þroskaþætti, hreyfiþroska og málþroska, sem ætlast er til að aðal umönnunaraðili svari. Í Smábarnalistanum eru spurningar um börn á aldrinum 15-38 mánaða og í Íslenska þroskalistanum eru spurningar um börn á aldrinum 3-6 ára. Heildarþroskatala og mælitölur Hreyfi- og Málþáttar eru á kvarða þar sem meðalgeta barna er á bilinu 85 til 115. Svörin eru borin saman við svör íslenskra mæðra jafngamalla barna.
Málþroskakönnun ASEBA (LDS: Language Development Scale)
LDS-hluti CBCL/1½-5 listans (sjá undir Hegðun, líðan: Spurningalisti um atferli barna) gefur ákveðna mynd af máltöku barna á aldrinum 18 til 36 mánaða. Þar merkja foreldrar við þau orð á orðalista sem barnið notar, svara spurningum sem tengjast máltöku og nefna dæmi um setningar sem barnið segir. Orðaforði og setningabygging/myndun barnsins eru borin saman við getu bandarískra jafnaldra.
Færnipróf Millers (M-FUN: Miller function and participation scales
M-Fun er staðalbundið próf ætlað 2;6 til 7;11 ára börnum. Prófinu er skipt í tvö aldursbil (2;6-3;11 og 4;0-7;11). Prófið er hannað til þess að greina færni barns við að samhæfa sjón og hreyfingar, fínhreyfingar og grófhreyfingar og er skipt niður í þessa þrjá hluta. Leggja má hlutana fyrir hvern fyrir sig eða alla saman. Niðurstöður fást fyrir hvern matshluta og eru settar fram í mælitölum og hundraðsröðum. Einnig fylgja matstækinu matslistar fyrir foreldra og kennara til þess að meta þátttöku í heima- og skólaumhverfi. Viðmið eru bandarísk.
Hreyfiþroskapróf fyrir börn (Movement ABC-2: Movement Assessment Battery for Children -2)
M-ABC2 er staðalbundið hreyfiþroskapróf ætlað 3-16 ára börnum. Prófinu er skipt í þrjú aldursbil (3-6; 7-10; 11-16). Lagt er mat á þrjá þroskaþætti: Fínhreyfingar og fingrafimi, Sambeitingu sjónar og hreyfinga, Jafnvægi í kyrrstöðu og á hreyfingu. Niðurstöður eru settar fram í staðaltölum og er meðalgeta barna á bilinu 7-13. Einnig fást niðurstöður í hundraðsröð þar sem 50 er miðgildið. Viðmið eru bresk.
Færnipróf fyrir börn (PEDI: Pediatric Evaluation of Disability Inventory)
PEDI er færnipróf fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 7:6 ára. Upplýsinga er aflað með viðtali við foreldra eða aðra sem annast barnið. Færni við eigin umsjá, hreyfi- og félagsfærni er metin auk þess sem sú aðstoð sem barnið fær er könnuð og hvaða hjálparbúnaður er notaður. Niðurstöður eru gefnar upp í staðaltölum (meðaltal 50 ± 10) og kvörðuðu gildi sem sýnir breytingar yfir tíma. Matstækið er að hluta þýtt og staðfært á íslensku.
Birting skynjunar (SP: Sensory Profile)
Matslistinn nýtist til að fá mynd af skynúrvinnslu barna á aldrinum 3–10 ára. Metin er hegðun barnsins sem og viðbrögð við skynáreitum sem eru hluti af daglegum aðstæðum. Foreldrar merkja við hversu oft staðhæfingar matslistans eiga við. Niðurstöður gefa vísbendingar um skynþröskuld barnsins og þörf fyrir aðlögun viðfangsefna og umhverfis. Matstækið er staðalbundið og viðmið eru bandarísk.
Hegðun,líðan
K-SADS greiningarviðtal
K-SADS er hálfstaðlað greiningarviðtal, byggt á greiningarviðmiðum DSM-IV. Því er einkum ætlað að greina ofvirkniröskun, en jafnframt skima og skoða nánar aðra erfiðleika tengda hegðun og líðan hjá börnum og unglingum. K-SADS hefur víða verið notað erlendis og hér á landi m.a. hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss.
ADIS greiningarviðtal
ADIS er staðlað greiningarviðtal, byggt á greiningarviðmiðum DSM-IV. Því er einkum ætlað að greina kvíðaraskanir barna og unglinga, en jafnframt ofvirkni/hvatvísi og athyglisbrest, hegðunarvanda, mótþróa, depurð, og fleira. ADIS hefur víða verið notað erlendis og er nú rannsókn í vinnslu á Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um notkun á íslenskri útgáfu viðtalsins.
Matslisti um hegðun á heimili (HSQ)
Listinn er ætlaður aldrinum 4–11 ára og samanstendur af örstuttum lýsingum á 16 dæmigerðum aðstæðum á heimilum. Foreldrar meta hve margar þeirra valda barninu erfiðleikum og hversu miklum, á kvarðanum 1–9 (frá vægum erfiðleikum til mikilla). Svör eru borin saman við það sem vitað er um svör foreldra íslenskra barna.
Matslisti um mótþróaröskun
Á mótþróaröskunarlistanum eru talin upp 9 atriði sem samrýmast einkennum í DSM-IV & ICD-10 greiningarkerfunum. Faðir, móðir og/eða annað fólk sem þekkir barnið, meta hve mörg atriðanna eiga við það. Sé merkt við fleiri en 3 atriði er talin ástæða til að skoða vanda barnsins nánar.
Ofvirknikvarði (ADHD Rating Scale)
Með ADHD listanum eru metin einkenni um ofvirkni og athyglisbrest. Þau einkenni sem spurt er um samsvara greiningaratriðum í DSM-IV greiningarkerfinu. Svör foreldra og kennara eru borin saman við það sem vitað er um svör foreldra og kennara íslenskra og bandarískra barna og unglinga á aldrinum 4–16 ára.
Spurningalisti um atferli barna (CBCL&TRF fyrir 1½-5 ára eða CBCL&TRF fyrir 6-18 ára)
Listarnir gefa vísbendingar um ýmis einkenni í dagfari barna sem tengjast líðan þeirra og hegðun, svo sem hlédrægni, depurð, erfið hegðun, einbeitingarerfiðleikar.Foreldrar (CBCL) og kennarar (TRF) svara spurningalistunum. Svörin eru borin saman við svör foreldra bandarískra barna og kennara.
Spurningar um styrk og vanda (SDQ: Strength and Difficulties Questionnaire)
SDQ listinn gefur vísbendingar um hegðun, tilfinningar og félagsleg samskipti barna 5 ára og eldri. Svör fullorðinna er þekkja barnið vel eru borin saman við svör foreldra og kennara íslenskra barna. Gefin eru heildarstig, auk þess sem stig fást fyrir undirkvarða sem taka til ofvirkni, erfiðleika í, tilfinningum og samskiptum við jafnaldra, auk hæfni í félagslegum samskiptum.