Tíðahvörfin hafa í för með sér breytingar á líkamsstarfsemi kvenna sem hafa áhrif á heilsuna út lífið. Margar konur kannast við að lífshættir sem áður hentuðu vel eiga ekki við lengur þegar líkaminn fer í gegnum breytingaskeiðið. Einnig líta margar konur á þennan tíma sem tækifæri til að innleiða nýjar venjur í daglegt líf.
Í þessu námskeiði er farið yfir hvað gerist í líkamanum um og eftir tíðahvörfin. Skoðuð verða áhrif tíðahvarfa á ólík líkamskerfi eins og hjarta- og æðakerfi, heila- og taugakerfi, líkamsklukku og þyngdarstjórnunarkerfi.
Farið verður yfir heilsueflandi þætti eins og heilnæmt mataræði, góðar svefnvenjur, hreyfingu og streitustjórnun. Einnig verður rætt um heilsufarslegar áskoranir sem konur geta staðið frammi fyrir með hækkandi aldri eins og beinþynningu, heilabilun og þvagfæravanda.
Að lokum verða skoðuð bjargráð og leiðir til að draga úr líkum á sjúkdómum og efla heilbrigði og vellíðan.