Lifðu vel og lengi

Fræðsla um heilsu og lífsstíl fyrir konur eftir tíðahvörf

Tíðahvörfin hafa í för með sér breytingar á líkamsstarfsemi kvenna sem hafa áhrif á heilsuna út lífið. Margar konur kannast við að lífshættir sem áður hentuðu vel eiga ekki við lengur þegar líkaminn fer í gegnum breytingaskeiðið. Einnig líta margar konur á þennan tíma sem tækifæri til að innleiða nýjar venjur í daglegt líf. 

Í þessu námskeiði er farið yfir hvað gerist í líkamanum um og eftir tíðahvörfin. Skoðuð verða áhrif tíðahvarfa á ólík líkamskerfi eins og hjarta- og æðakerfi, heila- og taugakerfi, líkamsklukku og þyngdarstjórnunarkerfi.  

Farið verður yfir heilsueflandi þætti eins og heilnæmt mataræði, góðar svefnvenjur, hreyfingu og streitustjórnun. Einnig verður rætt um heilsufarslegar áskoranir sem konur geta staðið frammi fyrir með hækkandi aldri eins og beinþynningu, heilabilun og þvagfæravanda.

Að lokum verða skoðuð bjargráð og leiðir til að draga úr líkum á sjúkdómum og efla heilbrigði og vellíðan. 

Umsjón

Námskeiðið er haldið á vegum Heilsubrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

Leiðbeinandi er Steinunn Zophoníasdóttir ljósmóðir með sérþekkingu á kvenheilsu.

Fyrirkomulag

Hóptímarnir fara fram Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð. (Það er sami inngangur og fyrir Læknasetrið, Gáska sjúkraþjálfun og Tannlækna Mjódd).  

Hámarksfjöldi á hverju námskeiði er 15 þátttakendur.  

Greitt er 5.000 kr. þátttökugjald við skráningu hér á vefnum.

Staðfestingarpóstur er sendur á netfang þátttakanda við skráningu. 

Mikilvægt er að tilkynna forföll tímanlega.

Hafið samband á heilsubru@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki og ef forföll verða.

Dagsetningar og skráning

Næstu námskeið:

  • Fimmtudagur 22. ágúst, kl. 15.00-17:00
  • Fimmtudagur 19. september, kl. 15.00-17:00
  • Fimmtudagur 24. október, kl. 15.00-17:00
  • Fimmtudagur 21. nóvember, kl. 15.00-17:00

Skráningarsíða fyrir námskeið

 

Námskeið í gegnum Teams fjarfundakerfi. Ætluð konum á landsbyggðinni og þeim sem ekki eiga heimangengt. 

  • Fimmtudagur 3. október á Teams, kl. 15.00-17:00
  • Fimmtudagur 5. desember á Teams, kl. 15.00-17:00

Skráningarsíða fyrir námskeið

Fannst þér efnið hjálplegt?

Rusl-vörn


Af hverju ekki?

Rusl-vörn