Velkomin í núið

Námskeiðið

Velkomin í núið er sex vikna námskeið í núvitund en núvitund snýst um að vera að til staðar með því sem er að gerast hverju sinni. Núvitundin hjálpar til að koma auga á gömul vanamynstur, auka áhuga fyrir líðandi stund og mæta því sem er að gerast af vinalegri forvitni. 

Á námskeiðinu eru aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar fléttaðar saman við núvitund.  Í hverjum tíma eru gerðar aðgengilegar og hagnýtar núvitundaræfingar eins og líkamshugleiðsla, hreyfihugleiðsla og hugleiðsla á líðandi stund. 

Námskeið af þessu tagi hafa dregið úr streitu, depurð og kvíða og aukið almenna vellíðan.

Umsjón

Námskeiðin er haldið á vegum Heilsubrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Leiðbeinandi er Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, sálfræðingur og núvitundarkennari

Fyrirkomulag

Hóptímarnir fara fram Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, 2. hæð. (Það er sami inngangur og fyrir Læknasetrið, Gáska sjúkraþjálfun og Tannlækna Mjódd).  

Í hverjum hópi eru að hámarki 15 einstaklingar og hóparnir hittast vikulega í 6 vikur, 90 mínútur í senn.

Námskeiðshópar hittast á þriðjudögum kl. 13:00 - 14:30. Fyrsta námskeiðið hefst 3. september og lýkur 8. október.

Þau sem hafa áhuga á námskeiðinu byrja á því að mæta í kynningartíma þar sem sagt er frá þeim meðferðarúrræðum sem boðið er upp á hjá Heilsubrú.

Þau sem ákveða að taka þátt í námskeiðinu greiða 16.000 kr. fyrir námskeiðið.

Meðferðin er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri.

Skráning

Þau sem vilja taka þátt byrja á að skrá sig í stuttan kynningartíma um námskeiðin sem eru í boði hjá  Heilsubrú. 
Greitt er 500 kr. þátttökugjald fyrir kynningartímann. 

Hafið samband á heilsubru@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki og ef forföll verða.