Upplýsingar og ráðgjöf vegna veikinda

Mynd af frétt Upplýsingar og ráðgjöf vegna veikinda
20.06.2024

Auðvelt er að finna skýrar leiðbeiningar um hvernig best er að bregðast við veikindum á þekkingarvefnum Heilsuveru. Þar er hægt að leita eftir einkennum eða sjúkdómum og fá leiðbeiningar um hvernig best er að bregðast við.

Á Heilsuveru má einnig finna leiðir til að fá ráðgjöf vegna bráðra veikinda. Þar má nota netspjallið á vefnum eða hringja í síma 1700. Þar svarar starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og veitir ráðgjöf. Svarað er í síma 1700 allan sólahringinn alla daga vikunnar. Netspjalli er svarað alla daga milli 8 og 22.

Netspjallið og 1700 síminn eru ætluð þeim sem þurfa aðstoð eða ráðgjöf vegna veikinda.

  • Fólki í neyð er bent á að hringja í síma 112.
  • Tímabókanir hjá heilsugæslu fara fram hjá viðkomandi heilsugæslustöð.
  • Afgreiðsla vottorða fer fram í gegnum heilsugæslustöð viðkomandi.
  • Endurnýjun lyfseðla fer fram í lyfjasíma heilsugæslustöðvar og í gegnum Mínar síður á Heilsuveru.

Þekkingarvefnum Heilsuveru er ætlað að hjálpa fólki að leita sér auðskiljanlegra upplýsinga um sjúkdóma og einkenni þeirra. Allt efni er unnið af fagfólki og lögð mikil áhersla á að allir geti nýtt sér efnið.


Á Heilsuveru er einnig hægt að opna þjónustuvefsjá til að finna næstu heilsugæslustöð hvar sem er á landinu. Þekkingarvefur Heilsuveru er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Embættis landlæknis og Landspítalans.