Samninganefndir Læknafélags Íslands og ríkisins funduðu hjá Ríkissáttasemjara alla helgina. Fyrsta lota verkfalls lækna hafði verið boðað frá miðnætti og til hádegis mánudag til fimmtudags. Fleiri verkfallslotur hafa verið boðaðar á næstu vikum.
Seint í gærkvöldi ákvað Læknafélag Íslands að aflýsa öllum verkfallsaðgerðum þessa viku þar sem viðræður gengu vel, eins og fram kemur í frétt á vef félagsins. Vonir standa til þess að samningar takist á næstunni. Boðaðar verkfallsaðgerðir sem hefjast eiga í næstu viku standa óhaggaðar.